Fótbolti - 2 flokkur fór á toppinn í gær með góðum sigri á Fram

12.ágú.2011  08:36
 2. flokkur karla í fótbolta vann í gær góðan 3-1 sigur á Fram.   Kjartan Guðjónsson skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik en Hilmar Ragnarsson bætti síðan við einu í þeim seinni. Guðjón Orri Sigurðsson markvörður liðsins gerði sér lítið fyrir og varði vítaspyrnu í seinni hálfleik í stöðunni 2-0. 
 
ÍBV/KFS/KFR er því á toppi B-riðils með 27 stig einu stigi á undan Fram og fjórum stigum á undan Fylki, þegar 6 leikir eru eftir. 
 
Liðið er einnig komið í undanúrslit bikarkeppninar þar sem þeir mæta Haukum á Ásvöllum þann 20 ágúst.