Í kvöld klukkan 18:00 eigast við á Valbjarnarvelli lið Þróttar og ÍBV í Pepsí deild kvenna. ÍBV er sem stendur í 4.sæti Pepsí deildarinnar með 21 stig einu stigi færra en Þór/KA.
Stelpurnar þurfa því á sigri að halda til að koma sér upp í 3.sætið á ný. Fyrri leikur liðanna í eyjum endaði með 2-0 sigri ÍBV.