Fótbolti - Strákarnir leika í Árbænum í dag (miðvikudag) kl. 19:15 ath breytt tímasetning

02.ágú.2011  10:01
 Strákarnir leika gegn lærisveinum Ólafs Þórðarsonar í Árbænum kl. 19:15 í dag miðvikudag. Síðast þegar þessi lið mættust í Árbænum var mikið fjör og má búast við hörku viðureign í ár. 
 
Eiður Aron leikur sinn síðasta leik fyrir félagið, í bili að minnsta kosti, vonandi ná félagar hans að kveðja hann með sigri ÍBV! 
 
Eyjamenn fjölmennum í Árbæinn kl. 19:15!          ÁFRAM ÍBV!!