Fótbolti - Melissa Cary til liðs við kvennalið IBV.

25.júl.2011  10:41
Kvennalið IBV hefur fengið til liðs við sig miðjumanninn Melissu Cary sem er Amerísk/Ítölsk.  Melissa lék með liði Bardolina á Ítalíu árið 2009 þegar liðið komst í undanúrslit meistaradeildarinnar.  Eftir það lá leið hennar til Bandaríkjana þar sem hún hefur leikið með liði Indíana síðan.  Það er vonandi að Melissa hjálpi liðinu í þeim miklu hremmingum sem þær hafa orðið fyrir undanfarið.
Næsti leikur liðsins er á morgunn kl. 18.00 gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ.
Við hvetjum alla Eyjamenn til að mæta að Varmá og hvetja stúlkurnar til sigurs.
 
ÁFRAM IBV.