Jón Ólafur Daníelsson var valinn þjálfari fyrstu 9 umferðanna í Pepsídeild kvenna . Þetta er mikil viðurkenning fyrir Jón Óla og ÍBV liðið, en liðið er nú í toppbaráttunni í Pepsídeildinni eftir að hafa komist aftur í efstu deild á ný.
Þá voru Birna Berg markvörður og Elísa Viðarsdóttir valdar í lið fyrstu 9 umferðanna. Stelpurnar eru svo sannarlega vel að þessu komnar enda hafa þær leikið mjög vel það sem af er sumri, líkt og samherjar þeirra.