Ákveðið hefur verið að framlengja við Kelvin Mellor til 15. ágúst, samkomulag þess efnis náðist við Crewe. Kelvin hefur hægt og rólega verið að stimpla sig inní deildina og skoraði sitt fyrsta mark fyrir liðið nú á sunnudaginn gegn FH og er í liði 10. leikviku hjá Morgunblaðinu.
Að sama skapi hefur Jordan Connerton verið sendur aftur heim þar sem hann náði ekki að sýna sínar réttu hliðar, en hann varð óheppinn með meiðsli sem settu strik í reikninginn.