Sísí Lára og Svava Tara hafa verið valdar í lokahóp U-17 ára landsliðs Íslands sem leikur í lok júlí í undanúrslitum Evrópumóst landsliða í knattspyrnu. Þetta er besti árangur sem Íslenskt landslið hefur náð í sögu knattspyrnunnar. Það er gríðarlegur heiður fyrir IBV að eiga tvo fulltrúa í þessum firnasterka hóp þar sem samkeppnin er mjög mikil. Sísí og Svava hafa báðar spilað mjög vel með meistaraflokknum í sumar og verður því gaman að fylgjast með þeim í keppninni.
IBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.