Fótbolti - 2.flokkur kvenna í undanúrslit.

11.júl.2011  08:35
Í gær léku í 2.flokki kvenna lið IBV og Breiðabliks í 8.liða úrslitum bikarkeppni KSI.  IBV hafði yfir í hálfleik með mörkum frá Berglindi og Hrafnhildi.  Snemma í seinni hálfleik var staðan orðin 2-2 en okkar stúlkur voru sterkari á endasprettinum og sigruðu 4-2.  Berglind Þorvaldsdóttir skoraði úr víti og innsiglaði svo sigurinn og þrennu sína með góðu skallamarki.
Undanúrslitin fara fram 22.ágúst.