Fótbolti - Strákarnir komnir til Dublin

06.júl.2011  15:08
 Strákarnir lentu í Dublin í gærkvöldi og tóku í morgun stutta æfingu á Richmond Park heimavelli St. Patricks. Þar mun seinni leikur liðana fara fram kl. 18:45 að íslenskum tíma á morgun (fimmtudag). 
 
Ferðalagið hefur gengið vel hingað til og veðrið í Dublin með besta móti 17 stiga hiti og skýjað. Þó lítur út fyrir einhverja rigningu á leikdag. 
 
Allir strákarnir eru í standi og má búast við hörku viðureign á morgun. Liðið sem fer áfram mun síðan mæta Koper frá Slóveníu eða Karagandy frá Khazekstan. Fyrri leikur þessara liða fór 1-1 í Slóveníu. 
 Strákarnir koma síðan heim seint á föstudagskvöld og munu leika gegn FH á sunnudaginn kl. 16:00 á Hásteinsvelli.