Fótbolti - Óþarfa tap á Fylkisvelli.

06.júl.2011  16:03
Okkar stúlkur fóru ílla að ráði sínu í gær er þær sóttu heim lið Fylkis.  Fyrri hálfleikur var jafn en IBV stúlkur þó ífið hættulegri og meira með boltann.  Það var þó greinilegt að langur leikur laugardagsins sat ílla í sumum leikmönnum IBV.  Í byrjun seinni hálfleiks yfirspilaði lið IBV lið Fylkis en algjörlega gegn gangi leiksins náðu Fylkistúlkur forystu eftir hræðileg mistök í vörn IBV.  Eftir þetta voru okkar stúlkur algjörlega bitlausar en reyndu hvað þær gátu til að jafna metin en ekkert gekk.  Í uppótartíma bættu Fylkisstúlkur svo við marki og lokatölur því 2-0.
Næsti leikur IBV er á þriðjudag gegn Val á Hásteinsvelli kl. 18.00
Við hvetjum alla stuðningsmenn til að mæta og styðja stúlkurnar til sigurs.
 
Áfram IBV.