Elísa Viðarsdóttir var valin í lið vikunar á Fótbolti.net eftir síðustu umferð. Elísa átti mjög góðan leik á móti Grindavík en þar var hún með erfitt hlutverk gegn mjög fljótum og sterkum framherja Grindavíkur. Elísa hélt aftur af henni allan leikinn og átti því fyllilega skilið að vera valin í þetta lið.
Í kvöld heldur svo baráttan áfram en þá mæta okkar stúlkur liði Fylkis sem hefur verið á góðri siglingu undanfarið. Það verður því við rammann reip að draga hjá IBV en okkar stúlkur munu sannarlega berjast til sigurs. Leikurinn hefst kl. 18.00
Við hvetjum alla Eyjamenn að fjölmenna og hvetja stúlkurnar til sigurs.
Áfram IBV.