Forsala miða á Evrópuleikinn hefst kl. 12:00 á morgun (laugardag)hjá Orkunni í Eyjum / Tvistinum og Shellstöðinni við Bústaðarveg í Reykjavík. Tilvalið að kaupa sér miða og fylla á tankinn í leiðinni.
Almennt miðaverð er 2.000 kr en 1.500 kr í forsölu.
Þetta verð gildir fyrir öll sæti.
Forsölunni lýkur síðan kl. 12:00 miðvikudaginn 29 júní.
Leikurinn fer fram á Vodafonevellinum kl. 18.00 fimmtudaginn 30. júní.
Herjólfur siglir frá Landeyjarhöfn kl. 22:30 á leikdag.