Yngri flokkar - Fyrsta námskeiðinu lokið í knattspyrnuskóla Ian Jeffs

22.jún.2011  14:57

næsta hefst 11. júlí

Fyrsta námskeiðinu af þremur í knattspyrnuskóla Ian Jeffs lauk í hádeginu, það voru margir góðir gestir úr meistaraflokki karla sem mættu á síðustu æfinguna og tóku leiki með krökkunum.
Að lokum var svo grillað oní mannskapinn og Pepsí drukkið með og allir sendir heim með Pepsí húfu og disk með æfingum á. Ian Jeffs var mjög ánægður með krakkana sem tóku þátt í námskeiðinu og vonast til að sjá sem flesta á næsta námskeiði.