Fótboltastelpurnar léku á laugardag í 16.liða úrslitum Valitors bikarsins gegn Völsungi hér á Hásteinsvelli. IBV sigraði 4-0 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 3-0. Okkar stúlkur léku ágætlega út allan leikinn og áttu aldrei í erfiðleikum með andstæðinginn. Danka Podovac kom IBV í 1-0 með glæsilegu marki. Hlíf bætti svo við marki tvö með góðum skalla eftir fyrirgjöf frá Sóley. Berglind Björg bætti svo við tveimur mörkum og sigurinn í höfn.
Næsti leikur stúlknana verður á fimmtudag gegn Stjörnunni í Garðabæ.
Áfram IBV