Yngri flokkar - Knattspyrnuskóli Ian Jeffs og Pepsí kominn á fullt skrið

14.jún.2011  12:56

Góð þátttaka

Knattspyrnuskóli Ian Jeffs hófs í gær mánudag og þetta námskeið sem er það fyrsta af þremur fer vel af stað, góð þátttaka er og einbeiting barnanna mikil. Bent er á að haldin verða tvö námskeið í viðbót, annað námskeiðið fer fram 11-22 júlí og er alla virka daga og það þriðja verður síðan 8-19 ágúst einnig alla virka daga.
Áhugasamir geta haft samband í Týsheimilið í síma 481-2060.