Á morgunn miðvikudag leika fótboltastelpurnar á heimavelli gegn Þrótti. Leikurinn hefst kl. 18.00. IBV er sem stendur í efsta sæti úrvalsdeildarinnar með fullt hús stiga og með markatöluna 12-0. Þróttarstúlkur hafa náð fínum úrslitum úr tveimur leikjum sínum af þremur enda spilar liðið mjög stífan og vel skipulagðan varnarleik. Það er því ljóst að stúlkurnar okkar þurfa mikinn stuðning á morgunn á Hásteinsvelli. ALLIR Á VÖLLINN.
Áfram ÍBV.