Leikmenn meistarflokks ÍBV halda norður og etja kappi við Þórsara á þriðjudaginn, leikurinn byrjar klukkan 19:15.
Þór er í 11 sæti með 3 stig, þeir fóru fyrst í Víkina og töpuðu þar í nýliðaslagnum 2-0, töpuðu heima gegn Stjörnunni 1-0, unnu svo frábæran sigur á Laugardagsvelli 1-0 eftir það komu tvö töp í Frostaskjóli og á Grindarvíkurvelli.
Eftir 5 leiki hafa þeir aðeins spilað 1 heimaleik og það er ljóst að Þórsarar ætla að taka meirihluta af stigum sínum á heimavelli þar sem þeir ætla að búa til gott vígi. Þannig þetta verður gríðarlega erfiður leikur fyrir okkar menn og þurfu þeir að sína allar sínar bestu hliðar ef þeir ætla að fá eitthvað úr þessum leik.