Yngri flokkar - Kiwanisklúbburinn Helgafell styrkir gleraugnakaup

31.maí.2011  13:33
Enn á ný kemur Kiwanisklúbburinn Helgafell færandi hendi. Nú hafa Kiwanismenn ákveðið að styrkja allt að 10 börn á aldrinum 6-15 ára um allt að 25 þúsund krónur til kaupa á sérstökum öryggisgleraugum til íþróttaiðkunar. Úthlutunarreglur og umsóknareyðublað má nálgast með því að koma í Týsheimilið og sækja gögn til að fylla út.