Eyjamenn ætla að hittast í Týs-salnum og hita upp fyrir leikinn mikilvæga gegn Víking á sunnudag.
Salurinn opnar kl. 14:00 og munu myndbönd rúlla á meðan stuðningsmenn hita sig upp fyrir átökin á Hásteinsvelli. Veitingasala og tónlist í bland við Eyjaskapið.
Leikurinn sjálfur hefst svo kl. 16:00. Fyrir leikinn mun síðan Kór Flensborgarskólans taka nokkur lög.