Fótbolti - Tveir með frumraun sína!

26.maí.2011  10:02

Guðjón Orri og Óskar rassskelltir

Í bikarleiknum þar sem ÍBV fór með sigur á Kjalnesingum 0-3 í 32 liða úrslitum bikarkeppni KSÍ komu tveir ungir og efnilegir við sögu í sínum fyrsta alvöru leik með meistaraflokki. Þetta voru þeir Guðjón Orri Sigurjónsson markvörður og Óskar Elías Zoega Óskarsson en þeir léku báðir síðari hálfleikinn. Þess má geta að Óskar verður ekki 16 ára fyrr en 4. nóvember á þessu ári.