Fótbolti - Fyrsti heimaleikurinn í úrvalsdeild síðan 2005.

24.maí.2011  09:22
Í dag kl. 18.00 taka okkar stúlkur á móti Aftureldingu í Pepsí deildinni.  Leikurinn fer að sjálfsögðu fram á Hásteinsvelli.  Þetta er fyrsti úrvalsdeildarleikur IBV síðan 2005.  Okkar stúlkur byrjuðu mótið mjög vel er þær lögðu lið Þórs/KA  5-0 fyrir norðan.  Það verður því spennandi að fylgjast með stúlkunum í dag.  Með góðum stuðningi gætu stúlkurnar náð góðum úrslitum.
Fjölmennum á völlinn og hvetjum stúlkurnar til sigurs.
 
Áfram IBV.