Í kvöld klukkan 20 mætir ÍBV liði Keflavíkur í Pepsídeild karla. ÍBV lék við Keflavík á sama stað í síðustu umferð í fyrra og tapaði þá 4-1 og missti af titlinum. Nú á að snúa taflinu við og sækja þrjú stig í bítlabæinn. Liðsfrétta er ekki að vænta fyrr en skömmu fyrir leik og munum við greina frá því hér þá. Þó má búast við því að Tryggvi Guðmundsson komi aftur í liðið eftir að hafa tekið út leikbann. Einnig verður fróðlegt að sjá hvort að Finnur Ólafs og Ian Jeffs verði tilbúnir en þeir hafa átt við meiðsli að stríða.