Í dag klukkan 16:00 tekur ÍBV á móti Blikunum á Hásteinsvelli. Búast má við hörkuleik á milli þessara liða í dag. Þessi tvö lið börðust um Íslandsmeistaratitilinn fram í lokaumferðina í fyrra. Bæði liðin sigruðu sína leiki í síðustu umferð. ÍBV sigraði Val á dramantískan hátt á Hlíðarenda með marki í uppbótartíma. Breiðablik sigraði Grindavík á heimavelli 2-1 eftir að hafa lent undir.
Blikarnir eru með 3 stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar en ÍBV er með 6 stig. Hjá okkar mönnum vantar Tryggva Guðmundsson sem tekur út leikbann í dag og þá eru þeir Finnur Ólafsson og Ian Jeffs ennþá meiddir og verða ekki í hóp í dag. Nú er bara að mæta á völlinn og fylkja sér á bak við strákana og styðja þá til sigurs.
ÁFRAM ÍBV.