Fótbolti - Glæsilegur sigur í fyrsta leik

14.maí.2011  17:49

Stelpurnar skoruðu 5 fyrir norðan

Fyrsta umferðin í Pepsí deild kvenna var leikin í dag. Okkar stelpur gerðu sér lítið fyrir og gjörsigruðu sameiginlegt lið Þórs og KA fyrir norðan. Þórhildur Ólafsdóttir skoraði fyrsta mark Íslandsmótsins strax á þriðju mínutu. Það voru svo þær Danka og Vesna sem bættu við mörkum áður en flautað var til leikhlés. Í upphafi síðari hálfleiks bætti Berglind Björg við fjórða marki ÍBV. Það var síðan Vesna sem bætti því fimmta við áður en leikurinn var allur. Það mark kom af vítapunktinum.
Þetta er svo sannarlega góð byrjun hjá ÍBV gegn liðinu sem að lenti í öðru sæti í fyrra. Næsti leikur verður á Hásteinsvelli gegn Aftureldingu þriðjudaginn 24 maí. Hægt er að sjá leikskýrsluna úr leiknum með því að smella hér.