Meistaraflokkur kvenna lék í gær sinn síðasta leik í B-riðli lengjubikarsins. Leikið var gegn Þrótti R. og var leikið á Þróttaravellinum í Laugardalnum í snjókomu. Leikurinn endaði 2-2. Það voru þær Kristín Erna Sigurlásdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir sem skoruðu mörk ÍBV í leiknum. Fyrir leikinn voru stúlkurnar þegar búnar að tryggja sér bikarinn. Við óskum þeim til hamingju með þennan fyrsta bikar ársins og vonandi eiga fleiri eftir að bætast við áður en árið er allt.