Strákarnir munu í dag taka á móti lærisveinum Bjarna Jó á Helgafellsvelli í kringum fimm leytið í dag. Þetta er síðasti æfingaleikur strákana fyrir mót, en fyrsti leikur liðsins er á Hásteinsvelli næstkomandi mánudag.
Hér gefst því kjörið tækifæri fyrir stuðningsmenn að sjá hvernig strákarnir koma undan vetri og stilla saman strengi fyrir átök sumarsins.
Frítt er á völlinn!