Meistaraflokkur kvenna lék í kvöld sinn fjórða leik í Lengjubikarnum. Mótherjarnir voru Grindavík og sigruðu okkar stelpur leikinn örugglega. Lokatölur voru 8-0. Mörkin skoruðu þær Þórhildur (2), Vesna (2), Kristín Erna(2), Hlíf og Danka.
Hér má svo sjá stöðuna í riðlinum hjá þeim. Þær eru búnar að leika 4 leiki og eru eftir þá með fullt hús stiga.