Fótbolti - Vinningshafar í Getraunaleik leikmanna ÍBV

08.apr.2011  16:46
Nú er ljóst hverjir vinningshafarnir í Getraunaleik leikmanna ÍBV 2011 eru. Fjórir aðilar reyndust þeir getspökustu og voru hnífjafnir með 12 rétta af 15 leikjum. Engin reyndist giska á rétt úrslit í bónusleiknum. Því tóku leikmenn á þá ráð að draga út efstu þrjá vinningshafana úr potti.
 
Vinningarnar úthlutuðust þannig:
 
1. sæti Arnarhóll
2. sæti Sigurjón Birgis
3. sæti Ólöf Margrét
 
Leikmenn ÍBV þakkar öllum þeim sem tóku þátt fyrir stuðninginn og óskar vinningshöfunum til hamingju með vinningana.
 
 
Allir fá vinningshafarnir Gjafabréf í Bláa Lónið fyrir tvo, Sportþrennu og Lýsi, Geisladiskinn Slor og skít og nýja ÍBV Lundan.
 
1. sætið hlýtur auk þess tvö 25.000 kr gjafabréf frá Úrval Útsýn, tvo ársmiða á völlinn og Þjóðhátíðarmiða.
 
2. sætið hlýtur auk þess einn ársmiða á völlinn, áskrift af Stöð2 Sport í mánuð og Þjóðhátíðarmiða
 
3. sætið hlýtur auk þess einn Þjóðhátíðarmiða