Fótbolti - Fótboltastelpurnar töpuðu í hörku leik.

02.apr.2011  16:15
Meistaraflokkur kvenna lék í gær æfingaleik gegn Fylki í Egilshöll.  Fylkisstúlkur náðu forystu snemma leiks en okkar stúlkur jöfnuðu með glæsilegu marki frá Kristínu Ernu.  Vesna kom svo okkar stúlkum yfir með mjög góðu marki eftir mikin einleik.  Fylkisstúlkur svöruðu með tveimur mörkum og staðan því í hálfleik 3-2 fyrir Fylki.  Í seinni hálfleik snéru okkar stúlkur leiknum sér í hag og komust í 4-3 með mörkum frá Dönku, bæði mörkin eftir glæsilegar sóknarlotur.  Fylkisstúlkur svöruðu aftur með tveimur mörkum.  staðan þegar þrjár mínútur voru eftir 5-4 fyrir Fylki. Kristín Erna jafnaði þá metin aftur eftir glæsilega sókn.  Þegar ein mínúta var til leiksloka fengu okkar stúlkur dauðafæri en markvörður Fylkis varði glæsilega í tvígang og Fylkisstúlkur brunuðu í sókn og skoruðu sigurmarkið.  Úrslitin því 6-5 fyrir Fylki í hreint ótrúlegum leik.