Þær Svava Tara Ólafsdóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir hafa verið valdar í lokahóp U-17 ára landsliðs Íslands í fótbolta. Liðið leikur í milliriðli evrópumótsins í Póllandi ásamt heimastúlkum, Englendingum og Svíum. Það er því ljóst þeirra bíða erfiðir leikir framundan. Stúlkurnar æfa um helgina í Reykjavík og halda svo utan á þriðjudag.
IBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.