Stelpurnar í meistaraflokki gerðu góða ferð uppá land um helgina. Þær byrjuðu á að sigra Hauka nokkuð örugglega 3-0 í gærkvöldi. Það voru Kristín Erna, Danka og Berglind Björg sem skoruðu mörkin. Í kvöld mættu þær síðan liði Aftureldingar og endaði leikurinn 5-2 fyrir okkar stelpur. Berglind var áfram á skotskónum og gerði sér lítið fyrir og setti þrjú mörk.
Hin mörk ÍBV gerðu þær Kristín Erna og Danka. Að sögn Þórhildar Ólafsdóttur fyrirliða ÍBV spiluðu okkar stelpur frekar illa í gær eftir erfiða sjóferð rétt fyrir leik. Annað var uppá teningnum í dag gegn Aftureldingu þar sem ÍBV var að spila mun betur þó smá þreyta hafi verið í gangi eftir að hafa spilað tæpum sólahring áður.