ÍBV sigraði HK í Lengjubikarnum 4-1. Lærisveinar Tómasar Inga í HK áttu ekki erindi sem erfiði og fyrsti sigur ÍBV í Lengjubikarnum því staðreynd. Staðan í leikhléi var 2-0 og skoruðu þeir Tryggvi Guðmundsson og Ian Jeffs mörkin . Í seinni hálfleik bættu svo Brynjar Gauti og Guðmundur Þórarinsson við mörkum.