Nokkrar efnilegar stúlkur úr 2.flokki í fótbolta skrifuðu nú um helgina undir samning við félagið til tveggja ára. Í tilefni af þessu héldu stúlkurnar sælkerakvöld í Týsheimilinu þar sem þær sýndu listir sínar í eldhúsinu. Sögur herma að grænar skonsur hafi litið dagsins ljós en ekki fara sögur af bragðinu. Stúlkurnar undirbúa sig af miklum móð fyrir æfingaferð félagsins til Spánar þann 16.apríl.