Fótbolti - Fréttatilkynning frá Knattspyrnuráði ÍBV

17.mar.2011  09:45

Knattspyrnuráði ÍBV þykir miður að Gunnar Heiðar Þorvaldsson hafi ákveðið að nýta sér ákvæði í samningi  okkar á milli að fara til erlends félagsliðs fyrir 1 apríl 2011.

Knattspyrnuráð vill óska Gunnari alls hins besta á sænskri grundu á komandi tímabili.

Þrátt fyrir það eru markmið  okkar skýr fyrir sumarið,  við ætlum okkur að berjast  um titla  og ná góðum árangri í Evrópukeppninni.

Við eigum í viðræðum við nokkra aðila  til þess að leysa framherjastöðuna hjá okkur næsta sumar.

Vonumst við eftir því að ná samningum við einn af þessum peyjum á næstu dögum  svo hann geti farið með liðinu í æfingaferð þann 26 mars n.k .

Áfram IBV!

Óskar Örn Ólafsson.

Formaður.