Yngri flokkar - Skemmtilegur fyrirlestur Loga Geirssonar um helgina

14.mar.2011  15:25

Myndir fylgja frétt.

Um seinustu helgi kom handboltakappinn Logi Geirsson til Eyja. Hann var með opna æfingu fyrir yngri flokka félagsins. Auk þess var hann með stórskemmtilegan fyrirlestur í Týsheimilinu fyrir börnin. Logi er tvímælalaust góð fyrirmynd fyrir börn og unglinga og fór hann um víðan völl í fyrirlestrinum. 
Meðal þess sem hann fór vel yfir var mataræðið. Þá fór hann vel yfir æfingarprógram og minnti á að það væri aukaæfingin sem skapaði afreksfólkið. Krakkarnir spurðu Loga útúr og virtust hafa gaman af því að hlusta á þennan mikla íþróttamann. Einnig mættu nokkrir þjálfarar félagsins á fyrirlesturinn.