Yngri flokkar - Nýr bæklingur frá unglingaráði kominn á netið

11.mar.2011  14:40

-Verður einnig borinn í öll hús

Unglingaráð ÍBV-íþróttafélags hefur á undanförnum vikum verið að vinna að útgáfu bæklings þar sem æfingartöflur félagsins koma fram ásamt ýmiskonar fróðleik um starf yngri flokka ÍBV. Í næstu viku verður bæklingurinn borinn í hús hér í Eyjum. Einnig er hægt að sjá bæklinginn hér.