Yngri flokkar - Logi Geirs með opna æfingu og fyrirlestur

11.mar.2011  10:48
Logi Geirsson er væntanlegur í bæinn og ætlar hann að vera með opna æfingu fyrir handboltakrakka fædda 1998 og fyrr og fyrirlestur. Æfingin verður í íþróttamiðstöðinni laugardaginn 12. mars klukkan 14:00 og fyrirlesturinn verður síðan í Týsheimilinu klukkan 15:30 og tekur hann um einn og hálfan tíma. Við hvetjum alla handboltakrakka til að nýta sér þetta tækifæri og fylgjast með hinum eldhressa Loga Geirssyni