Fótbolti - Unnu FH þrátt fyrir að spila 10 gegn 11 lengst af

03.mar.2011  08:58
 Kvennalið ÍBV bar í gærkvöldi sigurorð af FH í fyrsta leik liðanna í Lengjubikarkeppninni en leikurinn fór fram á gervigrasinu í Laugardal.  Danka Podovac kom ÍBV yfir snemma leiks en á 25. mínútu fékk Kolbrún Stefánsdóttir að líta rauða spjaldið fyrir að brjóta á sóknarmanni FH sem var að sleppa í gegn.  En þrátt fyrir að spila einum leikmanni færri það sem eftir lifði leiks, unnu Eyjastelpur 2:3.
 FH-náði reyndar að jafna metin 1:1 en Kristín Erna Sigurlásdóttir og Danka komu ÍBV aftur í 1:3 áður en FH-ingar náðu að minnka muninn.  En lengra komust þær ekki þannig að kvennalið ÍBV fer ágætlega af stað í Lengjubikarnum.
 
Tekið af eyjafrettir.is