Berglind Björg Þorvaldsdóttir var í gær kölluð inní A-landsliðshóp Íslands sem staddur er nú á Spáni og tekur þátt í mjög sterku móti nokkura af sterkustu landsliðum heims. Berglind sem hefur verið meidd allt undrbúningstímabilið var ekki valin í upphaflegan hóp en var eins og fyrr segir kölluð til í gær að loknum leik IBV og FH. Berglind er orðin góð af meiðslunum og vinnur nú að því að komast í gott leikform fyrir komandi átök.
IBV óskar Berglindi Björgu til hamingju með þennan árangur.