Yngri flokkar - 4. flokkur kvenna kominn í bikarúrslit

21.feb.2011  10:52
 Í  gær sunnudag spilaði 4 fl kvenna í 4 liða úrslitum í bikarkeppni HSÍ. Leikið var gegn Val sem er nú í 2 sæti 1 deildar en við spilum í 2 deild. Okkar stelpur gerðu sér lítið fyrir og sigruðum 30-28 í framlengingu. ÍBV voru með talsverða yfirburði í venjulegum leiktíma komnar með 6 marka forystu en, misstu það niður í jafntefli á síðustu mínútu, þannig að þá var framlengt og þar náðum við strax fjögra marka forystu og unnum leikinn.
 
Markaskorarar, María 8 mörk, Guðdís 7, Sandra Dís 7, Sóley 5, Bryndís 2 og Karen 1
 
Bikarúrslitaleikjum er gerð góð skil hjá HSÍ. "Allir úrslitaleikir yngri flokka fara fram í Laugardagshöll n.k. sunnudag, við mikla viðhöfn. Það verður einstaklega gaman að fara þangað aftur, en ég hef aldrei farið með yngri flokk í bikarúrslit áður, einungis með Mfl kvenna" sagði Unnur Sigmarsdóttir þjálfari 4. flokks við fréttaritara ibvsport.is eftir leikinn í gær.