Fótbolti - Lengjubikarinn 2011 hefst á leik við Leikni Reykjavík

17.feb.2011  17:43
Strákarnir í meistaraflokki spila sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum 2011 gegn Leikni frá Reykjavík.
 
Leikurinn fer fram í Egilshöll kl. 19:00 (föstudaginn 18. feb). Leiknir var í toppbaráttunni í 1. deild síðasta sumar og ætla að selja sig dýrt. Það má því búast við hörkuviðureign. Eyjamenn eru hvattir til að kíkja í Egilshöll annað kvöld og byrja helgina á góðum ÍBV leik.
 
 
ÍBV leikur í riðli með: Fram, Val, Fjölni, Víking R., Víking Ó. og HK.
 
Hægt er að sjá alla leiki meistaraflokks hér á heimasíðunni undir ,,leikir meistaraflokks" flipanum.