Fótbolti - Fimm úr fótboltanum á landsliðsæfingar.

17.feb.2011  16:15
Þær Sóley Guðmundsdóttir, Birna Berg og Berglind Þorvaldsdóttir hafa verið boðaðar á landsliðsæfingar hjá landsliði Íslands U-19.ára.  Þetta er liður í undirbúningi liðsins fyrir milliriðill evrópumótsins sem fram fer í Wales í lok mars.
Þá voru þær Sigríður Lára Garðarsdóttir og Svava Tara Ólafsdóttr valdar til æfinga með landsliði Íslands U-17.ára en þær eru að undirbúa sig undir milliriðil evrópumótsins sem fram fer í Póllandi 9.apríl n.k.
IBV óskar þessum stúlkum til hamingju með þennan árangur.