Yngri flokkar - Æfingagjöld yngri flokka

10.feb.2011  16:02

Innheimta að hefjast

Þá er að bresta á innheimta æfingagjalda fyrir árið 2011. Gjöldin verða jafn lág og undanfarin ár eða 36.000 fyrir eitt barn, 60.000 fyrir tvö börn og 72.000 fyrir þrjú börn. Foreldrar nýrra iðkenda eru beðnir um að koma í Týsheimilið og fylla út félagssamninga sem fyrst en þeir sem að hafa greitt áður fara í sömu innheimtu og þau voru í, í fyrra. Einnig minnum við foreldra á að börnin eru ekki tryggð hjá ÍBV á æfinum og í leikjum.