Yngri flokkar - Richard Scott kveður!

04.feb.2011  10:54
Þjálfarinn Richard Scott sem kom fyrir skömmu til okkar hjá ÍBV er að hverfa til baka til Newcastle þar sem honum bauðst staða sem erfitt var að hafna. Við hjá ÍBV kveðjum góðan þjálfara með söknuði og óskum honum velgengni. En maður kemur í manns stað og til starfa er kominn Gregg Ryder en hann kemur einnig frá Newcastle og bjóðum við hann velkominn til starfa, og væntum mikils af honum á komandi misserum. 
Stelpur í 2 og 3 flokki á síðustu æfingu með Richard, Gregg og Rúnar þjálfarar einnig með á mynd