Fótbolti - Kristín Erna Sigurlásdóttir skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.

02.feb.2011  17:58
Kristín Erna Sigurlásdóttir skrifaði í dag undir tveggja ára saming við IBV.  Kristín Erna var eftirsótt af öðrum félögum en ákvað að halda tryggð við sitt uppeldisfélag.  Kristín segist hlakka til að takast á við önnur úrvalsdeildarlið í sumar og ætlar að leggja sitt af mörkum til að IBV nái góðum árangri.  Árangur Kristínar í meistaraflokki er einstakur en hún er búin að spila 52.leiki og skora í þeim 51.mark.