Varnarmaðurinn Matt Garner hefur framlengt samning sinn við ÍBV um eitt ár. Garner sem er fæddur 1984 hefur leikið með ÍBV síðan 2004 og spilað síðan þá 109 leiki fyrir ÍBV og skorað í þeim 4 mörk. Garner kom til ÍBV á sínum tíma frá Crewe á Bretlandi.
Garner lék vel í vörninni á síðasta tímabili og spilaði 21 leik í deildinni og skoraði 1 mark.
ÍBV mun leika við Keflavík í úrslitaleik gegn Keflavík í Fótbolta.net mótinu á laugardaginn klukkan 13:00 í Kórnum Kópavogi. Garner mun ekki leika með en hann er að jafna sig af meiðslum.
Við hvetjum alla Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu til að mæta á leikinn og styðja ÍBV til sigurs.