Í kvöld, föstudaginn 21. janúar, fer fram fyrsti landsleikur Íslands í Futsal og verða Lettar mótherjarnir. Leikurinn er liður í forkeppni EM 2012 en riðill Íslands, B riðill, fer fram á Ásvöllum. Riðillinn hefst með leik Grikkja og Armena kl. 16:30 en kl. 19:00 mætast Íslendingar og Lettar.
ÍBV á fimm fulltrúa í landsliðinu og verður spennandi að sjá hvernig þeim gengur.
Leikur íslenska liðsins verður í beinni útsendingu á vefsjónvarpi Hauka - Haukar TV. Tengill: http://www.haukar.is/haukar-tv
Sjá meira
Það er óhætt að segja að íslenska liðið sé óskrifað blað í Futsal heiminum enda þetta fyrsta tækifærið til að láta að sér kveða. Willum Þór Þórsson, landsliðsþjálfari, valdi í upphafi 28 leikmenn til æfinga og stendur nú helmingurinn eftir, fjórtán leikmenn. Hópurinn er skemmtilega blandaður, reynsluboltar eru á ferðinni ásamt óreyndari leikmönnum. Aldursbilið á milli elsta og yngsta leikmanns eru 20 ár.
Hinar þjóðirnar komu til landsins í gær en íslenska liðið hélt inn á hótel eftir æfingu í gær. Það er mikill hugur í mönnum enda verkefnið gríðarlega spennandi og krefjandi.
Það er um að gera fyrir alla íþróttaáhugamenn að fjölmenna á Ásvelli og hvetja íslenska liðið áfram í þessum fyrsta landsleik. Aðgangur er ókeypis á alla leiki mótsins.
Mætum á Ásvelli og styðjum strákana!
ÁFRAM ÍSLAND - ALLTAF ALLSSTAÐAR