Rétt fyrir vígslu á nýju fótboltahöllinni skrifaði Elísa Viðarsdóttir undir tveggja ára samning við IBV. Elísa hefur spilað allan sinn ferill hjá félaginu og varð meðal annars íslandsmeistari í 2.flokki með félaginu árið 2008. Nú í ár náði Elísa einstökum árangri með liðinu en þær urðu íslandsmeistarar innanhús, komust í undanúrslit í bikarkeppninni og hápunktur tímabilsins var þegar liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeild.