Fótbolti - Síðasta umferð í Hópaleik ÍBV á morgun

17.des.2010  22:41
Það er mikil spenna á toppi hópaleiks ÍBV í getraununum. Síðasta umferðin er á morgun og er hópurinn ,,Hanni Harði" á toppnum fyrir lokaumferðina. Í öðru til fjórða sæti eru svo hóparnir Arsenal, Hróðnýjar og Kórdrengirnir en þessir þrír hópar eru með 104 stig eða stigi á eftir dúkaranum knáa Hanna Harða.
Lokastaaðan verður svo sett hér inn um leið og búið verður að yfirfara seðlana.