Meistaraflokkur karla gulltryggði sig um helgina í úrslitakeppnina í Futsal. Þetta mót kom fyrir nokkrum árum í stað Íslandsmótsins innanhús og hefur ÍBV alltaf tekið þátt.
ÍBV sigraði alla leiki sína í riðlinum og fer því í úrslitakeppnina sem fer fram í Reykjavík næstu helgi. Þar hefur ÍBV tækifæri til að lyfta sínum fyrsta titli á þessu tímabili.
Keppnin hefst á föstudag og mun sjálfur úrslitaleikurinn fara fram á sunnudeginum. Þau lið sem hafa nú þegar tryggt sig áfram eru Keflavík, Fjölnir, Víkingur Ó., Dalvík/Reynir og Leiknir R.
nánari upplýsingar eru um mótið á vef KSÍ eða hér